Lífið er...

... fyrirpartý fyrir það sem er handan !!!

06.06.2007 13:08:13 / Agusta

Ný síða!!

Komin með nýja síðu www.123.is/agustas

Bið að heilsa ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 21:44:38 / Agusta

Gleðilegt nýtt ár og allt það !!

Jæja það eru nú nokkrir mánuðir síðan ég lét eitthvað inn á þessa síðu ég er samt ekkert viss um að þetta sé einhver svakaleg endurkoma.

En reyniði að finna þann sem er ekki í Simpson-þáttunum.

Kv. Ágústa :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 20:46:45 / Agusta

Hvernig bjór ertu ??

Hehe þetta er magnað en ég er samt alveg hand viss um að ef Tuborg hefði verið með í þessari keppni hefði ég verið hann  :D við erum sko sálufélagar :) :)
You Are Heineken
You appreciate a good beer, but you're not a snob about it.
You like your beer mild and easy to drink, so you can concentrate on being drunk.
Overall, you're a friendly drunk who's likely to buy a whole round for your friends... many times.
Sometimes you can be a bit boring when you drink. You may be prone to go on about topics no one cares about.

http://www.blogthings.com/whatsyourbeerpersonalityquiz/


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 17:47:59 / Agusta

Í áskrift hjá símanum!!

Já það á ekki aftur af mér að ganga með mig og GSM síma.... Ég fór á Þjóðhátíð um daginn og á föstudagskvöldið týndi ég símanum mínum ég hélt á honum niðri í dal svo bara næsta sem ég vissi var síminn minn horfinn ... ég er ekki að saka neinnu um þjófnað því það er ekki allt í fersku minni :S enn allaveganna þá var ogvodafone með svaka tilboð á símum á þjóðhátíð eða 6900 kr svo að ég splæsti mér á einn.... Svo núna 4 vikum seinna var Ljósanótt og maður lætur sig nú ekki vannta á svoleiðis viðburði en ég er úti á miðri Hafnargötu með símann í hendinni labba inn á Traffic er komin á barinn kannski 2 mín seinna EKKI með síman :S þannig að núna er ég með gamlan síma frá pabba og þann 3 á rúmum mánuði er þetta hægt ?? Maður bara hreinlega spyr sig...

Helgin framundan og óvissuferð með Húsógellum á planinu...Góða helgi :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 21:04:42 / Agusta

Goðið í afmælisgjöf!!

Jæja skólinn byrjaði í síðustu viku er með ágætis töflu byrja klukkan 8 þrjá daga í viku og 9 hina er alltaf til 2 nema á fimmtudögum er þá til 1 aldrei í neinni eyðu og ekkert vesen með 16 einingar og er svona að spögulera hvort ég eigi að taka einn áfanga í fjarnámi. En svo átti Valgerður afmæli á sunnudaginn síðasta (til hamingju aftur) og hélt upp á það á laugadagskvöldið. Steph var að vinna í lóninu í síðustu viku og þá kom Þorvaldur Davíð í lónið og Steph var að afgreiða hann, notabene hún þurfti að tala ensku því hún var svo stressuð og hún spurði hann hvort hann gæti komið í afmæli hjá frænku sinni um helgina og ég held það nú, haldi þið ekki bara að Þorvaldur Davíð hafi komið og sungið og dansað hehe

Hann sjálfur og "dílerinn"

Og Vala fékk einkakennslu á nokkrum sporum :D

HEHE þetta var bara fynndið en nú er komin önnur helgi og ljósanótt í keflavík. En annars er ekkert að frétta svo vertu hress og ekkert stress blesssss


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 23:08:27 / Agusta

Fuglastríð ??

Öss það gæti nú alveg verið að maður fari að vakna með fugl við hlið sér einn daginn, kannski ágætt það er þá einhver HEHE. Þannig er mál með vexti að Patti frændi kom og vakti mig á laugardaginn svo kallar Bjössi á hann að hann eigi að vera fljótur fram svo kemur Patti aftur eftir nokkrar mínútur og segir mér að það hafi verið fugl inni hjá okkur, ég var nú ekki alveg að kaupa þetta hjá krakkanum en Bjössi kom svo og staðfesti þetta sagði að þetta hefið verið Maríu Erla eða eitthvað svoleiðis. Svo hugsaði ég bara ekkert meira um þetta fyrr en mamma kom heim og fór að finna fuglaskít hist og her um húsið, ég hugsaði bara með mér æ greyið hefur ekki fundið neina leiðu út og verið hræddur :S Svo í dag var ég eitthvað að taka til í herberginu mínu og sé allt í einu bara sé ég fullt af fjöðrum hliðina á rúminu mínu 8| flugl helvítið hefði þess vegna geta verið búin að skíta framan í mig á meðan ég var í mínum draumaheimi ... mér finnst þetta helv...óhugnalegt :(

Svo er skólinn bara byrjaður og allt að fara ganga sinn vanagang.


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 22:34:45 / Agusta

CA 355 dagar í næstu þjóðhátíð !!

Jæja þá er þjóðhátíð afstaðin og ég byrjuð að leggja fyrir fyrir næstu :D :D ég  held að það sé klárt að ég mæti að ári þetta er bara eins og einhver baktería sem maður losnar ekki við :S Ég er samt ekkert að byðja um að losna við hana ... ´

Svo er það bara próf á mánudaginn, í FÉL 203 í annað skipti og ef ég næ ekki þá bilast ég enn ég er ekki byrjuð að læra en þetta hlýtur að koma  er haggi ??? Svo byrjar alvara lífsins bara aftur í þar næstu viku ég er bara farin að hlakka pínulítið til .... þá til jólanna sko hehe

Svo er það bara Sálin á morgun :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 08:15:22 / Agusta

össs!!!

Þetta er eiginlega skammarlegt :S að vera ekki búin að blogga í næstum 2 mánuði HEHE... enn það sem hefur á daga mína drifið síðan ég var í Ameíkunni um páskanna er það að....

* Ég  og HG fórum í lærdóms ferð upp í bústaðinn þeirra mömmu og pabba að læra undir íslensku 303

* Ég náði öllu nema FÉL 203, þar á meðal ÍSL 303 þar sem ég skilaði ekki einni ritgerðinni og féll á hinni :S sem var bara gaman er samt viss um að kennarinn nennti barasta ekki að fá mig aftur.

* Fór í NÁT 113 í sumarskóla með Elvu ... og ég náði :D :D

* Sjómannadagshelgin bryggjuball með Pöpunum og Kaffi Grindavík opnaði :)...ég hét ég upp á 20 ára afmælið mitt .... Bara gaman

* Búin að búa í  ÁTVR síðan .... neii djók

* Vinna í Vísi... Blóðhreinsa með Kötlu :D:D

*  17.júní djammið hjá Gellunnum ... Reyndar endaði bara ég , Habby G og Heiða með fullt af öðru fólki í Furugerðinu :D

* Hestamannamót á Vindheimamelum.... fór með Heiðu og fullt af fólki endaði með að sofa í fellihýsinu hjá Bjössa bróðir báðar næturnar... hitti samt Sigurrós móðursystir mína og hennar mann og Jobba frænda sem ég hef ekki hitt síðan Patti var skírður (1.mars 2003) og svo voru auðvitað ólöf og elíntinna þarna og vala og steini og fullt af öðru fólki bara gaman :) :)

* Helgina eftir það fórum við á Írska daga á Akranesi ( 2 helgar í röð fór ég í útilegu ótrúlegt enn satt) Það var líka mjög gaman Magga frænka komst með þá :D HEHE :)

* Svo varð það bara Sálin á Nasa síðustu helgi sem var HREINASTA snilld :D Gummi Jóns og félagar alltaf flottir

Þetta voru samt bara svona helstu djamm atriðin sem hafa verið í gangi hjá mér síðustu vikur enn svona það sem er í mínu normall lífi er það að ég er búin að fjárfesta í einu stykki af íbúð næstum því úti í garði hjá mömmu og pabba eða í neðra 8býlinu (Ásabraut 16) er ekki alveg búin að ákveða hvort ég flytji í hana eða leigi það mun framtíðin bara leiða í ljós... Svo er ég að fara til Flórída á eftir með mömmu og pabba bara 10 daga afvöttnun :S Enn þegar ég kem heim verða bara 4 dagar í ÞJÓÐHÁTÍÐ :D:D

Ég vona svo innilega að ég verði duglegri að blogga á næstunni enn allaveganna þanngað til vertu hress og bless


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 19:25:31 / Agusta

Frasa sem eru svo venjulegir á íslenskur en kannski ekki eins venjulegir á ensku :D

The raisin at the end of the hot-dog = Rúsínan í pylsuendanum.

I measure one-pulled with it = Ég mæli eindregið með því.

Now there won't do any mitten-takes = Nú duga engin vettlingatök.

I come completely from mountains = Ég kem alveg af fjöllum.

Thank you for the warm words into my garden = Þakka þér fyrir hlý orð í minn garð.

Everything goes on the back-legs = Það gengur allt á afturfótunum.

He's comepletely out driving = Hann er alveg úti að aka.

It lies in the eyes upstairs = Það liggur í augum uppi.

She gave me under the leg = Hún gaf mér undir fótinn.

He stood on the duck = Hann stóð á öndinni.

I teach in breast of him = Ég kenni í brjósti um hann.

 

On with the butter!!! = Áfram með smjörið!

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 19:17:31 / Agusta

MS. new booty!!!

Gleðilegt sumar

Jæja pákafríið komið og farið, Ameríka komin og farin og ég er ekki enn þá að trúa því hvað allt í ameríku er frábært :D :D Vil bara þakka frænkum mínum fyrir frábæra vikur á SKO eftir að koma aftur hvort það verður í útskriftina henna Ólafar  hehe eða einhvern tíman seinna en sá tími mun koma :D

Stuðmannaball í Festi á morgun loksins búin að bíða síðan að síðasta festisball kláraðist og til þess að komast í gírinn fyrir helgina þá mæli ég með því að þið reynið að redda ykkur þessu lagi einhvern veginn Ms. new booty með Bubba sparxxxx hér er textinn þetta lag er tærasta snilld lærði það í Ameríku ;)

Chorus (Ying Yang Twins)]
Booty, booty, booty, booty, rockin' everywhere [3x]
Rockin' everywhere [2x]

[Bubba Sparxxx]
I found you MS NEW BOOTY
Get it together and bring it back to me
Hit the players club for about a month or two
Put his hand on it then see what he do [2x]

Get it ripe, get it right, get it tight [4x]

[1st verse (Bubba Sparxxx)]
Girl I don't need you, but you need me
Take it off, let if flop, shake it freely
And I don't tell stories, I let em tell theyself
And you aint gotta sell sex, girl, it sells itself, Like nothing else
Yeah I'm a country boy, but that big city bottom fill me up with joy
Aint life grand (life's grand) livin up daddy
Here go da whisper song, baby this is us ready?
Put it on me enthusiastically, what ever it is that chu do, you do it admirably
And I aint choose it, that thang chose me
Its bubba and ying yang, all the way in this pussy
YO!

Kann ekki að setja svona myndbönd inn á færsluna en það er líka fynndið :D :D

Set kannski myndir inn úr ferðinni um helgina og segi frá því hvað þetta var æðislegt!!

Góða helgi og munið gangið hægt gegnum gleðinnar dyr :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 20:44:43 / Agusta

Herre gud!!

Jæja þá er allt að fara að gerast í íslensku þjóðlífi. Mánudaginn 3.apríl klukkan 9:00 um morgun breytist ALLT!! Stöð2 sýnir Glæstar vonir eins og vanalega ENN það sem verður breytt er að það er búið að spóla þættina áfram um 2- 2og hálft ár. Sem sagt missa aðdáendur Glæstra af örugglega af því hvort Bridget komist af því að Decon eigi barnið hennar Brooke og fleiru. Þetta er allt út af einhverju að framleiðendur þáttanna hafa misst leifið á einhverri tónlist sem er í þáttunum. þess vegna þurfa stöð 2 að spóla þættina 2 ár fram í tímann en við erum núna 5 árum eftir á. Þetta verður eitthvað til þess að maður þarf að fara að horfa á á hverjum degi og flýta sé að komast í söguþráðinn aftur :D :D

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 13:24:53 / Agusta

137 dagar í Þjóðhátíð :D :D :D

Öss það er einungis 137 dagar í þjóðhátíð það er barasta ekki neitt, það er samt svoldið langt en þetta verður enga stund að líða ef maður lítur á björtu hliðarnar eins og Hrafnhildur nokkur Tyrfingsdóttir þá getur maður sagt að það er styttra þanngað til hún verður en síðan hún var :D :D

 

Ljósin alltaf jafn falleg

blog image

Og dalurinn líka :D :D


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 02:26:27 / Agusta

money makes a millionaier!!

Púff hvað það er langt síðan það kom eitthvað að viti á þessa síðu :S *ég veit það er mér að kenna. Ég gæti alveg farið að koma með einhverjar afsakanir um að það væri svo mikið að gera í skólanum og eitthvað bla bla en ég og Heiða voum einmitt að tala um það bara fyrr í kvöld að við skiljum ekki það er eitthvað voða mikið að gera hjá sumum í skólanum en einhvern veginn þá er ekkert að læra heima hjá okkur (kannski fer þetta bara inn um eitt og út um hitt :S)

En allavegann þá er ég samt búin að vera rosa duglega að fara að vinna eftir skóla frá 15:30 til 17:30 er ekkert smá stolt að mér að nenna þessu hef ekkert getað lagt mig :S hehe!! en bara með því að hugsa jákvætt og reyna að gera sér þá tölu í hausnum hvað maður fær útborgað næst þá er slorið ekki svo slæmt...

En svo varð Steinþór BESTI vinur minn (hehe) tvítugur á þriðjudaginn síðasta (til hamingju með það) og hún Hrafnhildur mín tvítug á miðvikudaginn síðasta (til hamingju enn og aftur) og hún hélt upp á það á laugardaginn rosa stuð hjá okkur vorum víst búnar að setja fram einhver loforð um að vera til hádegis á sunnudeginum að djamma en við erum ekki í betri þjálfun en það að við fórum heim klukkan 6 :S Ég tók alveg helling af myndum en er bara enn þá að leita af einhverri myndasíðu þar sem maður getur læst síðunni þannig að það séu ekki bara allir að skoða myndirnar hjá manni, þannig ef þið vitið um einhverja síðu sem hægt er að læsa þá endilega kommentiði!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 19:03:10 / Agusta

Klukkiti klukk

4 Störf sem ég hef unnið við um ævina:

Bæjarvinnan ,

Vísi 

Mamma mía 

Helgasport

 

4 Bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Clueless,

 How Stella got her... ,

 love and basketball,

Coyote ugly

4 Staðir sem ég hef búið á:

 

 

Stöðvafjörður,

Grindavík,

Reykjavík (bara á heimavist) 

Svíþjóð

 

4 Sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Glæstar vonir,

Nágrannar,

Friends

The O.C

4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Svíþjóð,

Flórída,

Spánn

Danmörk

4 Síður sem ég skoða daglega:
Bloggsíður

Mbl

People.com

Google heimsæki ég líka oft

4 Bækur sem ég hef lesið:
Dagbækurnar ,

hann var kallaður þetta

4 Staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
Flórída ,

minneapolis,

Salen 

Stokkhólm

 

 

4 sem ég skora á að gera þetta:

Elínu Tinnu,

Andreu, 

Kötlu

Valgerði


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 02:34:02 / Agusta

E ha!!

Jæja það er komin föstudagur og ekki nema 55 eða 56 dagar í páskafrí:D Vikan var samt asskoti fljót að líða sem er BARA gott mál, fékk smá þunglyndis-kast um miðja viku þegar átti að skila heimaprófi í félagsfræði datt bara í þann pakka að hætta í skólanum og fara að vinna fara svo bara með Rut og Guðbjörgu til Spánar í sumar í spænskuskóla og einhvað svona en ákvað samt að stilla vekjarklukku þegar ég fór að sofa til þess að gá hvort draumaheimar væru á sama máli... Daginn eftir hringdi vekjaraklukkan og ég ákvað nú samt að fara í skólan þrátt fyrir vangaveltur gærdagsins. Skilaði ekki prófinu :S en það dettur vesta einkunninn út og stefnan bara tekin miklu hærra fyrir næsta próf ENN maður þarf víst að lesa :( var bara ekki alveg búin að átta mig á því þegar fyrsta prófið var sett fyrir :S Er maður ekki bara ágætlega settur í skóla ?? Ég held það bara...

En á morgun ætlum við Hrafnhildur að fara á djammið í Reykjavík city, ætlum bara að taka daginn snemma og fara að versla út að borða og fínheit :) Ætli við endum ekki bara tvær eitthvað á renniríi en erum svo sem ekki óvanar því en skemmtum okkur alltaf þræl vel þótt við séum bara tvær...


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
�?jóðhátíð
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 922 dögum